Það er ánægjulegt að segja frá því að við Sörlafélagar eigum þrjá verðuga fulltrúa í landsliðshópnum 2021.
Hún Katla Sif Snorradóttir er í U21 landsliðshópnum
Katla Sif Snorrdóttir er fædd 2002. Hún er í Hestamannafélaginu Sörla og stundar nám við Flensborgarskóla og klárar þar núna í vor.
Katla átti góðan keppnisárangur á árinu í fjórgangi ungmennaflokki.
Og í A-landsliðshópnum eru þau Hanna Rún Ingibergsdóttir og Snorri Dal Sveinsson.
Hanna Rún Ingibergsdóttir er tamningamaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Hún hefur átt góðu gengi að fagna á keppnisbrautinni síðastliðin ár og hefur meðal annars verið í úrslitum á Íslandsmótum og Landsmótum. Hanna Rún starfar við tamningar og þjálfun í Kirkjubæ á Rangárvöllum.
Snorri Dal Sveinsson kemur nýr inn í landsliðshópinn. Snorri hefur átt frábært keppnisár á hestinum Engli frá Ytri-Bægisá I í fimmgangi. Snorri hefur átt góðan keppnisárangur og var m.a. Landsmótssigurvegari í B flokki 2006 og í 150 m skeiði 2008 og Íslandsmeistari í fjórgangi 2007, 2008 og 2009.
Til hamingju öll.
Þau hafa verið öflug á keppnisvellinum undan farin ár og verður spennandi að fylgjast með þeim á komandi ári.
Við Sörlafélagar getum verið virkilega stolt af þessum frábæru knöpum.
Hér má lesa nánar um A-landsliðið og U21-landsliðið og valið í þau.