Til hamingju Sörli

Nýtt æfingagerði 

Í síðastliðinni viku var tekið í notkun nýtt æfingagerði sem tekur við af hvítagerðinu sem verður rifið því það fer undir bílastæði nýju reiðhallarinnar.

Samþykkt var á stjórnarfundi í apríl að leita tilboða í nýtt gerði. Jarðbrú jarðvinnuverktakar sáu um jarðvegsvinnu og Stálsýn sá um uppsetningu á gerðinu sjálfu.

Vinna við gerðið hefur staðið yfir í sumar og haust. Glæsilegt gerði sem á eftir að nýtast félaginu næstu áratugina.

Unnið er í því að fá lýsingu í gerðið fyrir veturinn.