Kæri Sörlafélagi, nú er sumarið komið og margir á ferðinni. Af gefnu tilefni vil ég biðja alla félaga að sýna tillitsemi og kurteisi við náungan hvort sem það er á reiðvegum, í reiðgerðum eða úti á keppinsvelli. Það borgar sig ávalt að sýna öðrum kurteisi og tillitsemi.
Það er auðvitað skemmtilegt að ríða geyst á góðum gæðing í yndislegu veðri en við verðum að hafa í huga að á reiðvegunum getum við mætt minna vönum knöpum og lítið tömdum hestum. Það er góð regla að hægja á sér þegar maður ríður aftan að öðrum og jafnvel spyrja viðkomandi hvort að það sé í lagi að fara framúr. Þá eru mörg börn á ferðinni og okkur sem eldri erum ber skylda til að vera þeim fyrirmynd á reiðvegunum.
Inná keppnisvelli er gott að hafa í huga að allir eru að gera sitt besta og enginn ætlar sér að vera fyrir. Við skulum sleppa því að blindhleypa framhjá öðru fólki nema a.m.k. að láta manneskjuna vita að viðkomandi ætli á stökk.
Biðlund og þolinmæði eru einir af bestu kostum sem knapar geta haft.
Einnig vil ég benda á að það er ekki lengur í boði að keyra meðfram skeiðbrautinni.
Njótum saman þessa frábæru daga sem við fáum með kurteisi og tillitsemi að vopni.
Kær kveðja,
Ásta Kara
Yfirþjálfari Sörla