Umsóknarfrestur er liðinn

Yfirþjálfari Sörla 

Staða yfirþjálfara Hestamannafélagsins Sörla var auglýst laust til umsóknar í júlí s.l.

Umsókarfrestur er liðinn og unnið er úr umsóknum.

Stjórn og framkvæmdastjóri leggja áherslu á að sömu áherslur verði á haustönn og síðastliðin haust. Vegna breytinganna verðum við örlítið seinni með skipulag haustannar.

Til að svara fjölda fyrirspurna verður auðvitað haldið áfram með
- Félagshesthús
- Frumtamninganámskeið
- Námskeið í samvinnu við fræðslunefnd
- Reiðmennskuæfingar – Allir flokkar
- Knapamerki 2, 3, 4 og 5 ef næg þátttaka næst.
- Kennsla hefst hjá afrekshóp yngri flokka.

Við hlökkum mikið til að starfa með nýjum yfirþjálfara og sjá viðkomandi setja sinn blæ á það frábæra starf sem þegar hefur orðið vinsælt.

Námskeiðin og æfingarnar verða auglýst nánar um leið og hægt er.

Áfram Sörli