Vetrarleikar 2 - Góu og Hraunhamars

Skráning til 21:00 í kvöld föstudag 

Búið er að lengja í skráningu á Vetrarleika 2, hægt er að skrá í dag föstudag 26.feb til kl 21:00. Sportfengur er búinn að vera eitthvað leiðinlegur, einnig er hægt að skrá sig með því að senda tölvupóst á motanefnd@sorli.is

Aðrir Vetrarleikar vetrarins verða haldnir laugardaginn 27. febrúar. Hefjast þeir stundvíslega kl. 11:30 að Sörlastöðum í Hafnarfirði.

Keppnisflokkar:

  • Pollar
  • Börn
  • Unglingar minna vanir
  • Unglingar
  • Ungmenni
  • Byrjendaflokkur
  • Konur 2
  • Karlar 2
  • Heldri menn/konur 55 ára og eldri
  • Konur 1
  • Karlar 1
  • Opinn flokkur
  • 100 m Skeið
  • Pollar keppa inni í reiðhöllinni

Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Sörla. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra. Vetrarleikar Sörla er þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, auk þess sem keppendur safna stigum úr öllum þremur mótunum og verða stigahæstu knaparnir í hverjum flokki verðlaunaðir á síðasta mótinu.

  • 1.sæti gefur 11 stig
  • 2.sæti gefur 8 stig
  • 3.sæti gefur 6 stig
  • 4.sæti gefur 5 stig
  • 5.sæti gefur 4 stig

1 stig fá þeir sem sem taka þátt.

Á þessu móti er keppt í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms eftir útgefinni rásröð. Keppt er annars vegar í hægu tölti og hins vegar frjálsri ferð á tölti eftir fyrirmælum þular. Auk þessa er keppt í 100 m. skeiði. Riðnir eru tveir sprettir og gildir betri tíminn úr öðrum hvorum sprettinum. Sjá nánar reglur mótaraðarinnar hér:

Mótanefnd hvetur keppendur að nýta vetrarmótaröðina til að fara út fyrir þægindarammann og leggja metnað í hvaða flokk það skráir sig. Það hefur ekkert fordæmi fyrir því hvaða flokka fólk skráir sig í á stærri mótum. Hér má sjá hvernig flokkarnir eru skráðir í sportfeng og nánari lýsing á þeim.

  • Tölt T1: Opinn flokkur-Meistaraflokkur. Mikið keppnisvant fólk, bæði atvinnumenn og áhugamenn. Kynjablandaður flokkur. Fólk sem mjög virkt í keppni og hefur áralanga reynslu í keppni.
  • Tölt T1: Opinn flokkur - 1 flokkur. Keppnisvanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkurinn er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur verið að keppa sem áhugamenn og eru komnir með reynslu í einhverjum keppnisgreinum.
  • Tölt T1: Opinn flokkur - 2 flokkur. Minna vanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkur er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur lítið keppt eða er að byrja aftur að keppa eftir langt hlé.
  • Tölt T1: Opinn flokkur Flokkur 55+ heldri menn og konur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem eru 55 á árinu eða eldri. Þeir sem kepptu í þessum flokk í fyrra (þá 50+) mega halda áfram að keppa í þessum flokk.
  • Tölt T1: Opinn flokkur-3 flokkur Byrjendaflokkur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem hafa aldrei keppt en langar að spreyta sig.
  • Pollaflokkur: Knapar 9 ára eða yngri á árinu. Keppnin verður inni í reiðhöll
  • Barnaflokkur: Knapar 10 - 13 ára á árinu
  • Unglingaflokkur: Knapar 14 - 17 ára á árinu. Vegna mikillar aukningar í unglingaflokk höfum við ákveði að bæta við flokki. Unglingar minna vanir. (T3 unglingaflokkur í sportfeng)
  • Ungmennaflokkur: Knapar frá 18 - 21 ára á árinu

Skráningargjald er 2.500 kr. í öllum flokkum, en frítt er fyrir polla og 1.500 kr. gjald fyrir skeið.