Viðbótar frístundar og tómstundar styrkur frá Hafnarfjarðarbæ

Monní monní 

Á þitt barn rétt á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk til viðbótar hefðbundnum frístundastyrk?

Er þitt barn að sparka í bolta, blása í lúður eða binda skátahnút? Íþróttir og frístundir hafa forvarnargildi og veita líkamlega og andlega vellíðan. Ef þú átt barn á aldrinum 6-15 ára getur það átt rétt á sérstökum frístundastyrk að upphæð 45.000 kr.

Athugið. Umsóknarfrestur um þessa sérstöku styrki rennur út 1. mars nk.

Kanna rétt til sérstaks styrks á island.is (krefst innskráningar).

Sjá jafnramt nánar: Á þitt barn rétt á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk?

Minnum samhliða á frístundastyrk Hafnarfjarðarbæjar fyrir öll börn og ungmenni á aldrinum 6-18 ára í virku íþrótta- og tómstundastarfi.