Viðrunarhólf við Hlíðarþúfur

Viðrunarhólf 

Búið er að opna fyrir umsóknir um viðrunarhólf á vegum félagsins umsóknarfresturinn er til kl 24:00 þann 11. maí.

Hólfin eru 27 samtals, 17 fyrir neðan Kaldárselsveg og 10 í stykkinu við hliðina á 400 hringnum.

Hólfunum verður deilt út 13. maí og heimilt verður að taka þau í notkun 17. maí. Æskilegt er að bera á hólfin sín strax eftir úthlutun.

Þeir sem hafa rétt á því að sækja um hólf eru allir skuldlausir hesthúsaeigendur í Hestamannafélaginu Sörla.

Dregið verður um hólfin á Sörlastöðum mánudaginn 12. maí kl 18:00 - allir velkomnir.

Þeir sem fá úthlutuð hólf fá kröfu í heimabanka sem þarf að greiða áður en viðkomandi byrjar að nota hólfið.

Hér má nálgast umgengisreglur hólfana.

Umsjónarmenn hólfa girða sjálfir hver fyrir sig en til staðar eru girðingarstaurar með merkingu hólfana.

Úthlutað er fyrir einn mánuð í senn og er hægt að endurnýja samninginn þegar að sá tími er liðin, einnig er hægt að ákveða að vera með hólfið allan tíman strax og greiða þá fyrir það.
Þeir sem ekki fá hólfi úthlutað geta farið á biðlista og jafnvel þá fengið hólf ef einhverjir nýta ekki alla mánuðina.

Verð fyrir einn mánuð 8000 kr.
Verð fyrir annan mánuð er 5000 kr.
Verð fyrir þriðja og fjórða mánuð er 4000 kr.

Senda skal umsókn á netfangið vidrunarholf@sorli.is og taka fram nafn, húsnúmer í Hlíðarþúfum, götu og götunúmer í efra hverfinu og gsm símanúmer eiganda.

Kveðja,
Viðrunarhólfanefnd