Viðrunarhólfanefnd

Fleira má bíta en feita steik 

Tilgangur og hlutverk Viðrunarhólfanefndar

Starfssvið Viðrunarhólfanefndar er að skipuleggja uppgræðslu, girðingavinnu og nýtingu á því landsvæði sem Hafnarfjarðarbær hefur úthlutað félaginu til afnota undir viðrunarhólf, þannig að það nýtist félagsmönnum sem best.

Viðrunarhólfanefnd  fyrir starfsárið 2023-2024

Formaður Ólafur Ólafsson 895 7435 Hlíðarþúfum
Friðþjófur Ragnar Friðþjófsson Hlíðarþúfum
Guðmundur Tryggvason Hlíðarþúfum
Vilhjálmur S. Bjarnason Efri byggð
Sigurður Finnur Kristjánsson Efri byggð
Jóhann Ari Böðvarsson Efri byggð

Starfslýsing fyrir Viðrunarhólfanefnd

Samþykkt á aðalfundi 2019

  1. Viðrunarhólfanefnd skal skipuð sex aðilum, þrír úr Hlíðarþúfum og þrír úr efri byggð.

  2. Starfssvið hennar er að skipuleggja uppgræðslu, girðingavinnu og nýtingu á því landsvæði sem Hafnarfjarðarbær hefur úthlutað félaginu til afnota undir viðrunarhólf, þannig að það nýtist félagsmönnum sem best.

  3. Nefndin á að leggja til og annast um gjaldtöku í samstarfi við stjórn félagsins. Stefnt skal að því að ekki falli kostnaður á félagið.

  4. Nefndin skal sinna uppbyggingu og viðhaldi á girðingum og öðrum aðbúnaði fyrir hross á svæðinu.

  5. Nefndarmenn skulu ávallt nota netfang nefndarinnar í tölvupóstsamskiptum við aðra um málefni nefndarinnar.

  6. Í upphafi starfsárs gerir nefndin rekstraráætlun og sendir stjórn félagsins til samþykktar.

  7. Gjaldkeri í samráði við framkvæmdastjóra skal fara með fjármál nefndarinnar í samræmi við lög og góða reikningsskilavenju. Löglegir reikningar skulu fylgja öllum greiðslum.

  8. Uppgjör nefndarinnar skal gera tveimur vikum fyrir aðalfund og eigi síðar en mánuð fyrir framhaldsaðalfund. Með uppgjöri skulu fylgja reikningar fyrir öllum útlögðum kostnaði.

  9. Nefndin ber ábyrgð á auglýsingum á viðburðum og öðru tengdu efni varðandi nefndarstarfi.  Nefndin skal skila fréttum og öðru efni til framkvæmdastjóra fyrir Sörlavefinn.

  10. Nefndin stofnar árlega fésbókarsíðu fyrir eigendur hrossa sem nýta viðrunarhólfin og notar þá síðu til upplýsingagjafar.

  11. Nefndin heldur fundi eins oft og þurfa þykir.

  12. Fundargerð skal rituð á hverjum fundi og lesin á næsta fundi.

  13. Nefndin skal hafa skilað reikningshaldi til framkvæmdastjóra félagsins að minnsta kosti einum mánuði fyrir aðalfund.

  14. Skila skal skýrslu nefndarinnar fyrir starfsárið, viku fyrir auglýstan aðalfund.

Að öðru leiti fer starfslýsing nefndarinnar eftir lögum félagsins.