Vinsamlegast fjarlægið vagna og óskoðaðar kerrur

Hestakerrusvæði 

Kæru félagsmenn

Nú verða þeir sem eru með óskoðaðar kerrur, vagna, hjólhýsi, litlar kerrur og tjaldvagna að fjarlægja það á hestakerrusvæði félagsins núna um helgna.

Ekki láta sjálfboðaliða félagsins þurfa að verja sínum tíma í tiltekt á svæðinu.

Hestakerrusvæðið er nú enn og aftur orðið fullt af óskoðuðum kerrum, hjólhýsi, tjaldvagni, litlum kerrum og heyvögnum, en  þetta svæði er eingöngu fyrir HESTAKERRUR.

Nú í apríl fara framkvæmdir af stað við nýja reiðhöll. Fyrst þarf að færa innganga inn í núverandi mannvirki og hluti af hestakerrusvæðinu verður innan athafnasvæðis verktakans sem reisir höllina.

Við erum búin að vera í viðræðum við Hafnarfjarðarbæ um frekari lausn á kerrusvæði/um fyrir félagsmenn okkar, en það er ekki komið á hreint, því ríður á að við fjarlægjum allt sem ekki á að vera á hestakerrusvæðinu og í hesthúsahverfunum okkar til að koma kerrum fyrir. Einnig langar okkur að biðla til þeirra sem hafa tök á að fara með hestakerrur sínar eitthvað annað tímabundið að gera það.

Hér að neðan eru myndir sem voru teknar af hestakerrustæðinu í síðustu viku af óskoðuðum kerrum og ýmsu sem ekki á að vera þarna. Vinsamlegast fjarlægið þið sem eigið þetta dót af félagsvæðinu. Þið hafið tíma til þess fram yfir helgina eða til 27. mars.

Áskilinn er réttur til að láta fjarlægja hluti sem ekki eiga að vera þarna á kostnað eiganda.

Oft hefur verið þörf en nú er nauðsynlegt að við bregðumst við og lögum þetta hjá okkur.

 Áfram Sörli.