Vorfjarnám 2021

Þjálfaramenntun 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ 

Frá ÍSÍ

Vorfjarnám 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ hefst mánudaginn 1. feb. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.

Nám allra stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur. Námið hefur verið afar vinsælt til fjölda ára og þátttakendur komið frá mörgum íþróttagreinum. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Þátttökugjald á 1. stig er kr. 34.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 28.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin. Gjaldið á 3. stig er kr. 40.000.- Athugið að þeir nemendur/þjálfarar sem koma frá fyrirmyndarfélögum/-deildum ÍSÍ fá 20% afslátt af námskeiðsgjaldi.

Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið fyrir mánudaginn 1. feb. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi.

Slóð á skráningu á öll stig í sumarfjarnámi þjálfaramenntunar ÍSÍ 2020:

http://isi.is/fraedsla/thjalfaramenntun-isi/skraning-i-thjalfaramenntun/

Allar nánari uppl. um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 & 863-1399 eða á vidar@isi.is

(Sjá hér neðar)

Dæmi um svör frá nemendum í fjarnámi ÍSÍ 2020 þegar þeir voru spurðir út í helstu kosti námsins:

“Faglegt og gott námsefni, þverfagleg nálgun á þjálfun og gott samband inn í íþróttagreinar”

“Lærdómsríkt, skemmtilegt og nytsamlegt”

“Gott aðgengi að kennara og vel útskýrt námsefni”

“Hellings fróðleikur um þjálffræði”

“Mjög gott að geta stundað flott nám í fjarnámi”

“Vel skipulagt og skýr verkefnaviðmið og leiðsögn”

“Mér fannst það ýta undir gagnrýna hugsun og kenndi mér ýmislegt hagnýtt sem hefur nýst mér í þjálfarastarfinu”

“Góðir kennarar og vel valið efni”

“Farið vel yfir langflesta þætti sem snúa að þjálfun”

Kemur með kunnáttu/þætti sem margir íþróttamenn hafa ekki vitneskju um en eru gríðarlega mikilvægir”

“Það er alhliða og hefur ólíkar nálganir”

“Vel skipulagt og skýr áætlun”

„Gott skipulag, gott kennsluefni og kennarinn er fljótur til svars þegar maður þurfti hjálp“

„Mjög margir, get ekki þulið þá alla upp“