Nú er komið að hinni árlegu Skírdagsreið Sörla og að venju munum við ríða á til móts við félaga okkar úr öðrum hestamannafélögum á höfuðborgarsvæðinu.
Í ár ríðum við um Klifsholtsleið sem liggur frá Torgi hinna himnesku veiga í Smyrlabúið og hittum félaga okkar í Gjárétt.
Síðan fjölmennum við í Skírdagskaffið að Sörlastöðum og gæðum okkur á góðum veitingum.
Lagt verður af stað frá suðurgafli Sörlastaða kl 12:30.