Vetrarleikar 3

Mótaröð 

laugardaginn 2. apríl 2022 kl. 00:00

Tímasetningar o.fl auglýst síðar.


Keppnisflokkar:

  • 100 m skeið (10 þáttakendur lágmark)

  • Börn

  • Unglingar

  • Ungmenni

  • Byrjendaflokkur

  • Konur 2

  • Karlar 2

  • Heldri menn/konur 55 ára og eldri

  • Konur 1

  • Karlar 1

  • Opinn flokkur

  • Pollar   - Inni í reiðhöll
     

Skráningargjald er 2500 kr í alla flokka, frítt fyrir polla og 2000 kr í skeið.

Skráning fer fram dagana XXXXXX inn á sportfengur.com EKKI VERÐUR SKRÁNINGU FRAMLENGT EFTIR ÞANN TÍMA, svo skal fólk skrá sig tímanlega.    „You snooze you loose“

Þeir sem ákveða að greiða með millifærslu skulu senda kvittun á netfangið; motanefnd@sorli.is

Skráning polla fer fram á motanefnd@sorli.is Sendið inn nafn knapa, nafn hests og lit.

Afskrárningar skulu sendar á motanefnd@sorli.is

Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Sörla. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.

Vetrarleikar Sörla er þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, auk þess sem keppendur safna stigum úr öllum þremur mótunum og verða stigahæstu knaparnir í hverjum flokki verðlaunaðir á síðasta mótinu.

1.sæti gefur 11 stig
2.sæti gefur 8 stig
3.sæti gefur 6 stig
4.sæti gefur 5 stig
5.sæti gefur 4 stig
1 stig fæst fyrir þá sem taka þátt.


-Á þessu móti er keppt í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms eftir útgefinni rásröð. Keppt er annars vegar í hægu tölti og hins vegar frjálsri ferð á tölti eftir fyrirmælum þular.

-Auk þessa er keppt í 100 m. skeiði. Riðnir eru tveir sprettir og gildir betri tíminn úr öðrum hvorum sprettinum. Lágmark 10 keppendur, sé flokkur ekki felldur niður.

Sjá nánar reglur mótaraðarinnar hér. 

Mótanefnd hvetur keppendur að nýta vetrarmótaröðina til að fara út fyrir þægindarammann og leggja metnað í hvaða flokk það skráir sig. Það hefur ekkert fordæmi fyrir því hvaða flokka fólk skráir sig í á stærri mótum. Hér má sjá hvernig flokkarnir eru skráðir í sportfeng og nánari lýsing á þeim.

  • Tölt T1- Opinn flokkur-Meistaraflokkur. Mikið keppnisvant fólk, bæði atvinnumenn og áhugamenn. Kynjablandaður flokkur. Fólk sem mjög virkt í keppni og hefur áralanga reynslu í keppni.

  • Tölt T1- Opinn flokkur - 1 flokkur. Keppnisvanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkurinn er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur verið að keppa sem áhugamenn og eru komnir með reynslu í einhverjum keppnisgreinum.

  • Tölt T1 - Opinn flokkur - 2 flokkur. Minna vanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkur er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur lítið keppt eða er að byrja aftur að keppa eftir langt hlé.

  • Tölt T1 – opinn flokkur-3 flokkur Byrjendaflokkur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem hafa aldrei keppt en langar að spreyta sig.

  • Tölt T1-Opinn flokkur Flokkur 55+ heldri menn og konur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem eru 55 á árinu eða eldri. Þeir sem kepptu í þessum flokk í fyrra (þá 50+) mega halda áfram að keppa í þessum flokk.

  • Pollaflokkur - Knapar 9 ára eða yngri á árinu. Keppnin verður inni í reiðhöll

  • Barnaflokkur -  Knapar 10 - 13 ára á árinu

  • Unglingaflokkur -  Knapar 14 - 17 ára á árinu

  • Ungmennaflokkur - Knapar frá 18 - 21 ára

Helstu upplýsingar um viðburð:

Hvað:
Hestamannamót
Hvenær:
Hvar:
Hraunhamarsvellinum
Hver:
Mótanefnd hefur umsjón með þessum viðburði.
Viðburðurinn var settur í Dagskrá þann 1. nóvember 2023