LH Þing - smá yfirferð
Farið yfir nýyfirstaðið LH þing sem hluti stjórnarmanna sótti auk annarra fulltrúa Sörla. Þingið fór fram rafrænt en þingfulltrúar Sörlu sátu þingið á Sörlastöðum. Almennt talið að ágætlega hafi tekist til þrátt fyrir fordæmalausar aðstæður.
Ný viðmið frá vinnuhóp v. árangursverðlauna félagsins
Stjórn fjallaði um ný viðmið og fyrirhuguð árangursverðlaun sem ætlunin er að veita fyrir góðan árangur félagsmanna á mótum á liðnu keppnisári. Ætlunin er að með nýjum viðmiðum verði valið gagnsærra og skilvirkara. Stjórn leggur áherslu á að veitt verði sem flest verðlaun fyrir árangur í yngri flokkum.
Kæra vegna tengingu göngustígar
Umræður + ákveða þarf undirbúningsfund fyrir fund með umhverfis- og skipulagssviði Hafnarfjarðar.
Rætt um kæru Sörla til kærunefndar umhverfis- og skipulagsmála vegna göngustígs í gegnum skóginn á öðrum hraunhringnum. Ákveðið að afturkalla kæru í ljósi þess að Hafnarfjarðarbær lýsti því í greinargerð fyrir kærunefndinni að framkvæmdir yrðu stöðvaðar og þá hefur umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðar boðað Sörlafélaga til fundar og samráðs. Að mati stjórnar er ekki ástæða til að halda kærumáli til streitu í ljósi þess að til samtals hefur verið boðað og framkvæmdir stöðvaðar.
Vetrarskemmtun/Uppskeruhátíð – 15. og 16.jan
Ákveðið að blása til rafrænnar uppskeruhátíðar í janúar og ræddur útfærslur á því, skemmtiatriði og fleira.
Frá framkvæmdastjóra
Ýmis söluvarningur
Framkvæmdarstjóri kynnt ýmsan söluvarning svo sem ábreiður, hnakkábreiður og úlpur sem verða til sölu hjá félaginu.
Dagskrá vetrarins og staða nefnda, miklar breytingar á mótanefnd og skemmtinefnd
Rædd skipan nefnda og þær breytingar sem liggja fyrir.
Önnur mál
Ekki voru rædd önnur mál.
Fundi slitið kl. 22:30