1. Félagsvæði staðan og starfsemi sumars
Framkvæmdir á nýju reiðhöllinni ganga samkvæmt áætlun, reiðskólinn vel sóttur í sumar.
2. Félagshesthús
Rætt um nýja hugmynd ( tilraunaverkefni ) skoða að auglýsa eftir að fá fjölskyldu sem hefði áhuga á að taka þátt í verkefni „ komdu í hestanna“ verður það tekið áfram inn í veturinn þegar séð verður hvernig staða á plássum í húsinu þróast næsta mánuðinn. Nánari útfærsla sett í vinnu stjórnar og kynnt síðar og auglýst þegar til þess kemur. Yfirþjáfari og kennarar frá félaginu sjá um kennslu í starfinu ásamt aðstoðafólki.
3. Kynbótasýningar 2024
Stjórn sammála því að vegna framkvæmda á Sörlastöðum á næsta ári að kynbótasýningarverði ekki fyrr en árið 2025.
4. Frá framkvæmdastjóra
a. Félagshesthús
Búið að moka út, þrif og viðhald í gangi - allt að verða klárt fyrir vetrarstarfið. Góð skráning bæði í starfið og í leigupláss.
b. Starfsmannamál
Skoða stöðugildi varðandi viðhald á félagshúsi, reiðhöll og svæði, stjórn samþykkti að farið væri í málið enda mjög brýnt að fá inn starfsmann í þau verkefni.
c. Námskeið, Reiðmennskuæfingar
Skráningar í fullum gangi fyrir reiðmennskuæfingar sem hefjast um miðjan september n.k. þegar uppselt á reiðmennskuæfingar fullorðna og komin biðlisti, ágætis skráning í yngri flokka og á knapamerki 2 og 3. Fyrirhugaður er fundur með með framkvæmdarstjóra, formanni ásamt yfirþjálfara og reiðkennurum á komandi tímabili. Umræða um Æskan og hestinn flytja heim á Sörlastaði þegar ný reiðhöll verður klár – þetta jú hófst allt þar á sínum tíma.
d. Viðrunarhólf
Vatnið komið á og svæðið verður tekið í notkun á komandi hausti nánar auglýst síðar.
e. Sörlalundur
Næsta skref að undirbúa jarðveg til að geta sett þökur á hluta svæðis til að hægt verði að fara nota lundinn sem fyrst á komandi ári einnig að skoða að láta hlaða vegg merkja lundinn með skilti.
f. Stebbukaffi
Vegna dræmrar aðsóknar í laugadagskaffi var tekin ákvörðun að ósk Stebbu að leggja það niður á komandi vetri en halda óbreyttu á viðburðum félagsins samanber mót og annað.
5. Önnur mál
a) Rætt um að fara að huga að keppnisjökkum fyrir fulltrúa Sörla sem fara á landsmót 2024 málið sett í farveg.
b) Framkvæmdarstjóri kynnti stjórn drög að dagskrá sem liggur fyrir á komandi tímabili verður hún sett inn fljótlega.
c) Ákveðið var að kaupa peysur fyrir krakka í félagshúsi og á reiðmennskuæfingum – Gleðja krakkana og gaman hafa þau sýnileg í starfinu og út á við fyrir félagið.
Ekki fleira gert og fundi slitið kl. 22:30