Fjáröflunar- og skemmtinefnd skal skipuð a.m.k. fimm félagsmönnum og er formaður er kosinn á aðalfundi. Á fyrsta fundi skal nefndin kjósa sér ritara og gjaldkera.
Nefndin skal sjá um allar skemmtanir félagsins svo sem árshátíð, þorrablót og skírdagskaffi o.fl. Kvennareið skal skipulögð í samráði við Kvennadeild Sörla. Tilgangurinn er fjáröflun auk þess að skemmta félagsmönnum og gestum þeirra.
Allar skemmtanir og viðburðir á vegum nefndarinnar skulu vera bornar undir framkvæmdastjóra til samþykktar.
Nefndarmenn skulu ávallt nota netfang nefndarinnar í tölvupóstsamskiptum við aðra um málefni nefndarinnar.
Nefndin ber ábyrgð á auglýsingum á viðburðum og öðru tengdu efni varðandi nefndarstarfi. Nefndin skal skila fréttum og öðru efni til framkvæmdastjóra fyrir Sörlavefinn.
Í upphafi starfsárs gerir nefndin rekstraráætlun og sendir stjórn félagsins til samþykktar. Rekstraráætlun skal gera ráð fyrir tekjuafgangi og skal nefndin leggja fyrir stjórn hugmyndir um ráðstöfun tekjuafgangs til fyrirliggjandi verkefna á vegum Sörla.
Gjaldkeri í samráði við framkvæmdastjóra skal fara með fjármál nefndarinnar í samræmi við lög og góða reikningsskilavenju. Löglegir reikningar skulu fylgja öllum greiðslum.
Uppgjör nefndarinnar og endurgreiðslur til einstakra aðila skulu fara fram eigi síðar en einni viku eftir viðburð og afhendast framkvæmdastjóra Sörla. Með uppgjörum og endurgreiðslum skulu fylgja reikningar fyrir öllum útlögðum kostnaði.
Fundargerð skal rituð á hverjum fundi og lesin á næsta fundi.
Nefndin skal hafa skilað endanlegu reikningshaldi til framkvæmdastjóra félagsins að minnsta kosti einum mánuði fyrir aðalfund.
Skila skal skýrslu nefndarinnar fyrir starfsárið, viku fyrir auglýstan aðalfund.
Að öðru leiti fer starfslýsing nefndarinnar eftir lögum félagsins.