Árs- og uppskeruhátíð fullorðinna 2022

Dansskór og partýgalli 

Kæru Sörlafélagar og aðrir góðir gestir!

Nú er loksins komið að því á ný að við fjölmennum og skemmtum okkur saman og því ekki seinna vænna að blása til veislu eins og okkur Sörlafólki sæmir!

Árs- og uppskeruhátíð Sörla og allsherjar skrall sem verður án nokkurs vafa eftirminnilegasta skemmtun seinni ára!

Veisluhöldin munu fara fram laugardaginn 19. nóvember í glæsilegum sal FH-inga, Sjónarhóli. Veitingarnar verða svo sannarlega ekki af verri endanum, við erum að tala um þriggja rétta dæmi frá snillingnum Silla kokk. Veislustjórn verður að sjálfsögðu í höndum Sörlafélaga eins og áður og eru á ferð sannir reynsluboltar sem hafa vakið mikla eftirtekt og athygli nú þegar í partý bransanum. Partý-sveitin Steinliggur og mun halda öllum vel við efnið á dansgólfinu!

Húsið opnar kl 18:09 með flugeldasýningu, pompi og prakt.
Borðhald og skemmtun mun svo hefjast á slaginu 19:09 og hljómsveitin byrjar að spila fyrir dansi kl 21:49.
Miðaverð er 9.900 kr en einnig verður hægt að kaupa miða eingöngu á ballið sem kostar 4000 kr (hleypt inn kl 21:49).


Þetta verður ógleymanleg kvöldstund sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara!

Ath. takmarkaður miðafjöldi í boði - svo fyrstur kemur fyrstur fær! Hægt er að tryggja sér miða með því að senda tölvupóst á skemmtinefnd@sorli.is með nafni, símanúmeri og fjölda miða. Afhending miða verður svo auglýst síðar.

Nú er komin tími til að dusta rykið af dansskónum og draga fram partýgallann!

Hlökkum til að sjá ykkur !
Skemmtinefnd Sörla