Árs- og uppskeruhátíð barna- og unglinga var haldin í vikunni sem leið. Tæplega 60 pollar, börn og unglingar mættu og skemmtu sér svo sannarlega vel.
Sörli er stoltur af öllu því frábæra unga fólki sem stundar hestamennsku á svæðinu. Allt eru þetta frábærar fyrirmyndir sem svo sannarlega kunna að skemmta sér fallega í sannri gleði.
Sörli veitti að vanda unga íþróttafólkinu sínu verðlaun fyrir góða frammistöðu á árinu.
Í barnaflokki stóðu efst
Knapi Sörla í barnaflokki er Hjördís Antonía Andradóttir
2. verðlaun Karítas Hlíf F. Friðriksdóttir
3. verðlaun Unnur Einarsdóttir
Í unglingaflokki stóðu efst
Knapi Sörla í unglingaflokki er Erla Rán Róbertsdóttir
2. verðlaun Árný Sara Hinriksdóttir
3. verðlaun Elísabet Benediktsdóttir
Verðlaun fyrir ástundun í yngri flokkum
Árlega er síðan kosinn áhugasamasti unglingurinn en þau verðlaun eru veitt fyrir dugnað, áhuga, framfarir og það að vera góð fyrirmynd í hestamennsku. Að þessu sinni hlaut Elísabet Benediktsdóttir þá viðurkenningu.
Pollar verðlaunaðir
Allir pollar sem mættu á hátíðina fengu viðurkenningarskjal.
Um leið og að við óskum verðlaunahöfum innilega til hamingju þökkum við öllum fyrir komuna. Að auki langar okkur að þakka öllu unga fólkinu okkar fyrir að gera félagsstarf Sörla jafn innihaldsríkt og skemmtilegt og það er í dag. Sörli er svo sannarlega félag sem sameinar kynslóðir. Það er virkilega skemmtilegt að sjá reiðgöturnar fullar af hressum krökkum strax á haustdögum.
Áfram Sörli