Bling námskeið fyrir unga Sörlakrakka með Siggu Pé frá Sólvangi

Á Sörlastöðum 

Sunnudaginn 23.nóv ætlum við að bjóða upp á BLING námskeið í veislusalnum í reiðhöllinni í Sörla fyrir yngri kynslóðina.

Á námskeiðinu gera þátttakendur ennisól fyrir hestinn með fallegum kristals steinum undir leiðsögn Siggu Pje frá Sólvangi. Námskeiðið tekur um tvær klukkustundir og hentar flestum frá 9 ára aldri (en mögulegt er að vera yngri en þá í fylgd fullorðinna).

Námskeiðið byrjar kl: 13:00 og er áætlað að því ljúki í kringum 15:00. Námskeiðið verður kennt í 2 hópum ef skráning næst en fyrstu 12 sem skrá sig eru með fast pláss. Ef mikið skráning er þá verður öðrum hópi bætt við sem byrjar 15:30.

Verð á námskeiðið er 10.000 kr (og miðast það verð við að gera ennisól)

Fyrir þá sem að hafa tíma og vilja gera eitthvað meira er hægt að kaupa sér t.d. armbönd, múla, tauma og lyklakippur til að skreyta. Einnig verður í boði að kaupa höfuðleður og múla án skrauts. Posi á staðnum fyrir það.

Skráning á aeskulydsnefnd@sorli.is , skráningu lýkur í hádeginu föstudaginn 21. nóvember.

Æskulýðsnefnd
Sörla