Frumtamninganámskeið

Þrjú pláss laus 

Þrátt fyrir ástandið í þjóðfélaginu þá vonumst við til að hertar aðgerðir sóttvarnalæknis og almannavarna beri árangur og því stefnum við ótrauð á að byrja með frumtamninganámskeiðið í byrjun nóvember.

Það eru enn þrú pláss laus á námskeiðið.

Róbert Petersen reiðkennari verður með frumtamninganámskeið hér í Sörla og hefst það mánudaginn 2. nóvember með bóklegum tíma kl 18:00 á Sörlastöðum.

Eftir bóklega tímann verður hópnum skipt í minni hópa og kennt verður á milli 17:00-21:00, hver hópur klst í senn.

Í verklegu tímunum kemur hver þátttakandi með sitt trippi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamninga, s.s:

  • Atferli hestsins
  • Leiðtogahlutverk
  • Fortamning á trippi
  • Undirbúningur fyrir frumtamningu
  • Frumtamning

Bóklegir tímar: 1
Verklegir tímar: 11
Tímar: Mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga í fjórar vikur.
Verð: 45.000.-

Fjórir nemendur verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 – 16 þátttakendur. Bóklegur tími verður sameiginlegur fyrir allan hópinn.

Verklega kennslan fer fram að hluta í hesthúsi með samliggjandi reiðhöll á svæðinu og í reiðhöll Sörla, þar verður unnið með trippin. Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.

Fyrstu 16 sem skrá sig komast á námskeiðið, hinir fara á biðlista.

Skráning er HÉR