Gæðingamót Sörla – Úrtaka fyrir Landsmót 2022 - opin töltkeppni og skeið - UPPFÆRT

Á Hraunhamarsvelli 

Gæðingamót Sörla og úrtaka fyrir Landsmót 2022 fer fram dagana 2.-5. júní næstkomandi á Hraunhamarsvellinum við Sörlastaði.

Gæðingahluti mótsins er lokaður þar sem um úrtöku fyrir Landsmót er að ræða, en T1 og 100m skeið verður opið öllum.

Boðið er upp á tvær umferðir í úrtöku fyrir Landsmót.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
● A flokkur opinn – 6.000 kr
● A flokkur Áhugamanna (gæðingaflokkur 2) – 6.000 kr
● B flokkur opinn – 6.000 kr
● B flokkur Áhugamanna (gæðingaflokkur 2) – 6.000 kr
● Barnaflokkur – 5.000 kr
● Unglingaflokkur – 5.000 kr
● Ungmennaflokkur – 5.000 kr
● Tölt T1 – 7.500 kr
● 100 m fljúgandi skeið – 5.000 kr


Úrtaka fyrir Landsmót

Mikilvægt að allir knapar sem vilja hafa möguleika á að komast inn á Landsmót fyrir hönd Sörla skrái sig í fyrri umferð úrtöku þann 2. og 3. júní. Forkeppnir í opnum flokkum gilda inn á Landsmót. Knapar sem stefna á Landsmót skulu því skrá sig í Opinn Flokk.

Knapi sem hefur hug á að ríða seinni umferð í úrtöku þarf að hafa riðið þá fyrri.

Skráning í seinni umferð er valkvæð, en allir sem sækjast eftir sæti á landsmóti þurfa að vera skráðir í fyrri umferð.

Inn á Landsmót gildir betri árangur hests (knapi og hestur í yngri flokkum) úr báðum umferðum.

Ætli knapi að taka þátt í mótinu en hefur EKKI hug á að vinna sér sæti á landsmóti skráir hann sig eingöngu á Gæðingamót - seinni umferð og getur þá átt kost á að komast í úrslit á sunnudag.

Í áhugamannaflokki (gæðingaflokki 2) er eingöngu ein forkeppni (laugardaginn 4. júní) og úrslit sunnudaginn 5. júní. Þessi flokkur vinnur sér EKKI inn sæti á landsmóti. Knapar eru hvattir til að skrá sig í opna flokka til að eiga möguleika á sæti á landsmóti.

Athugið að inni á Sportfeng er sitt hvor skráningin fyrir Gæðingamót Sörla fyrri og seinni umferð.

Hestur sem keppir þarf að vera í eigu Sörlafélaga og í yngri flokkum þurfa knapar að vera félagsmenn í Sörla og hestur í eigu Sörlafélaga

Ef vandræði koma upp í skráningu hafið samband á motanefnd@sorli.is eða við Anítu formann mótanefndar í síma 777 3426 eða Elvar 846 2810

Drög að dagskrá er eftirfarandi en nánari dagskrá verður birt þegar skráning á mótið liggur fyrir.


Gæðingamót  Sörla fyrri úrtaka Landsmót

Fimmtudagur 2. júní
A-flokkur (opinn flokkur)
Barnaflokkur

Föstudagur 3. júní
B flokkur (opinn flokkur)
Unglingaflokkur
Ungmennaflokkur

Gæðingamót Sörla seinni úrtaka fyrir Landsmót

Laugardagur 4. júní
A flokkur opinn
A flokkur Áhugamanna (gæðingaflokkur 2)
B flokkur opinn
B flokkur Áhugamanna (gæðingaflokkur 2)
Barnaflokkur
Unglingaflokkur
Ungmennaflokkur
Tölt T1

Sunnudagur 5. júní
Úrslit
100 m fljúgandi skeið

Skráning er nú opin í Sportfeng og stendur til 24:00 sunnudaginn 29. maí.

Mótanefnd Sörla