Hópreið á Landsmóti 2022

Hópreið 

Tilkynning frá LM2022 vegna hópreiðar
Kæru félagar.
Þá fer að líða að setningarathöfn Landsmóts 2022 á Hellu.
Hópreiðin er stór partur af setningarathöfninni og verður gaman sjá alla þá þátttakendur sem mæta í félagsbúningum eða prúðbúnir með sínum Hestamannafélögum.

Það er ótakmarkaður fjöldi frá hverju félagi, þar sem hópreiðin fer fram á stóravellinu þá er nægt pláss fyrir alla.

Það er hugmyndin að hafa 4 saman í breiðfylkingu og einn með félagsfána fyrir fram. (Fer allt eftir fjölda hvers félagsmanna hvernig verður raðaða upp hjá hverju félagi).
Gert er ráð fyrir fjölda manns og því verður margt um manninn með hestakerrur á svæðinu.

Það er hægt að koma ríðandi frá hesthúshverfinu á Hellu fyrir þá sem vilja leggja þar. Eins verður aukabílastæði notað fyrir kerrur og er það staðsett við endan á tjaldsvæðinu nær Rangárhöllinni.


Það verður raðað upp við reiðhöllina og síðan riðið yfir mönina og inn á Stóravöllinn. Þar fara fram ræður og setning mótsins. Síðan verður tekinn hringur á vellinum og riðiði útaf.


Áætlað er að setningarathöfnin hefjist kl. 19.20 fimmtudaginn 7. júlí og er þá er gott að vera kominn 18:20.
Þorvarður Helgason
660-4606
Hópreiðastjóri

Hverjum við alla landsmótsfara sem eru með hross í svæðinu að koma í reiðina og einnig Sörlafélaga sem eru með hesta sína í nágrenninu.

Keppendur í sínu fínasta keppnisfatnaði og aðrir Sörlafélagar í snyrtilegum reiðfatnaði og Sörlmerktum jökkum.

Áhugasamir sem ekki eru keppendur á landmótinu vinsamlegst látið Diddu vita í sms í númerið 897 2919 ef þið ætlið að mæta.

Áfram Sörli