Nú er keppnistímabilið að hefjast og allar deildirnar að byrja. Þá er tilvalið að bjóða öllum félagsmönnum sem hafa hug á keppni eða vilja fæðast um hvað það er sem dómarar líta eftir þegar þeir dæma hesta.
Íþróttadómararnir Svafar Magnússon og Halldór Gunnar Victorsson ætla að halda fyrirlestur í Glersal Íshesta 11. febrúar kl 19:00.
Þeir fara yfir þessi atriði:
1. Kynning á reglum og leiðara (hvar er þá að finna og hvernig virka þeir).
2. Sjónarhorn og starf dómarans.
3. Hvernig geta knapar bætt sig.
4. Dæma hesta eftir myndbandi til að gefa nemendum innsýn inní þeirra hugsun
Halldór og Svafar eru báðir með endurmentun frá HIDI
Þeir sem vilja nýta sér þetta frábæra tækifæri og komast inní hugarheim íþróttadómara endilega láta sjá sig.
Gott er að taka blað og penna með sér.