Kvennadeildin - Töltæfingar

Æfingarnar halda áfram 

Kvennatöltæfingar - léttar og liðkandi, við æfum okkur að ríða í slöngur og eitthvað fleira skemmtilegt..

Við ætlum að vera annan hvern föstudag á Sörlastöðum á milli 18:00-23:50 og byrjum 7. feb, 21. feb, 7. mars, 21. mars og 11. apríl.


Við getum því miður ekki haft súpu og huggulegheit með Stebbu á Sörlastöðum en reynum að gera eitthvað sniðugt eitthvert kvöldið.

Ásta Kara stýrir þessum æfingum.

Okkur langar að biða allar konur, á öllum aldri, að taka þátt, alls ekki bara þeim sem hafa tekið þátt síðastliðna tvo vetur. Því Sörlakonur er svo sjúklega skemmtilegar að við erum alveg vissar um að úr verður skemmtilegur félagsskapur með skemmtilegum hugmyndum sem þróast inn í starfið.

Verð 17.000 kr. Þær fyrstu 48 sem skrá sig komast að hinar fara á biðlista.

Búið er að opna fyrir skráningu.

Skráð verður á námskeiðið í gegnum Sportabler kerfið, þeir sem ætla að skrá sig verða að stofna eigin Sportabler aðgang.

Hægt er að skipa greiðslum í kerfinu.

Til að stofna aðgang þá:
https://sportabler.com/shop/sorli/

Velja tungumál
Innskrá í Sportabler
Nýskrá 
Fylla út 
Senda

Eftir að búið er að stofna sinn eigin aðgang þá er aftur farið inn á sportabler.com/shop/sorli veljið námskeiðið og gangið frá skráningu.