Opið á Sörlastöðum á Vetrarleikum 1

Ánægjulegar fréttir 

Þau gleðitíðini bárust í hádeginu að á miðnætti í dag taka gildi nýjar sóttvarnarreglur, þannig að við getum verið með opið á Sörlastöðum.

Stebbukaffi verður opið og hægt verður að horfa á og fylgjast með mótinu í salnum.

Ný reglugerð um samkomutakmarkanir og eftirfarandi eru helstu atriði er snerta almenning og íþróttastarf í landinu:

  • Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 10 í 50 manns

  • 1 metra regla mun taka gildi í stað 2 metra reglu

  • Grímuskylda mun gilda áfram og tekur mið af nándarreglu

  • Fjöldatakmarkanir í íþróttum verða áfram 50 manns

  • Það verður heimilt að hafa allt að 500 manns í hverju hólfi í áhorfendasvæðum á íþróttaviðburðum

  • Sundstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði fá að taka á móti allt að 75% af leyfilegum fjölda samkvæmt starfsleyfi.

Hér er hægt að lesa frétt á vef Heilbrigðisráðuneytisins en beðið er eftir að reglugerðin verði birt til að sjá frekari útfærslu á reglunum.