Skírteina afhending

Knapamerki 

Okkur hjá Hestamannafélaginu Sörla þykir alltaf jafn ánægjulegt að sjá hve margir sækja þau Knapamerkjanámskeið sem eru í boði ár hvert. Þessi þátttaka segir okkur að okkar frábæru félagsmönnum er umhugað um að bæta reiðmennsku sína og þekkingu. Með nýrri reiðhöll sjáum við fram á að geta eflt þessa kennslu og aðra til muna og hlökkum við því mikið til framtíðarinnar.

Á árinu luku margir nemendur Knapamerkjanámi á flestum stigum. Kennarar Knapamerkjanámskeiða stefna á að afhenda skírteini til viðurkenningar á árangri þann 20. ágúst n.k. kl 19:30 að Sörlastöðum.

Kæru nemar og fjölskyldur, takið daginn frá og fjölmennum.