Enn eru nokkur laus pláss á helgarnámskeið hjá reynsluboltanum og Sörlafélaganum Atla Guðmundssyni, námskeiðið verður haldið helgina 30. nóv - 1. des.
Atla þarf vart að kynna en hann hefur áratuga reynslu af keppni og kennslu í hestamennsku, hann kennir bæði hérlendis og erlendis. Námskeiðið verður sniðið að þörfum hvers knapa og hests.
45 mín. einkatímar laugardag og sunnudag.
Námskeiðsgjald er 26.000 kr.
Fyrstu 10 sem skrá sig komast á námskeiðið, hinir fara á biðlista.
Skráningu lýkur 27.nóv í Sportabler.
Hér er hægt að skrá á námskeiðið.
Til að skrá í Sportabler þarf að stofna aðgang.
sportabler.com
Velja tungumál
Innskrá í Sportabler
Nýskrá
Fylla út
Senda
Eftir að búið er að stofna sinn eigin aðgang þá er aftur farið inn á sportabler.com/shop/sorli valið námskeið fyrir iðkendur, hægt er að skipta greiðslum.