Vegna takmarkanna kerfanna Sportfengs og HorseDay urðum við að víkja frá þeirri ákvörðun að vera með blandaða flokka A og B í forkeppni fullorðinna opnum og áhugamönnum.
Það er því búið að laga dagskránna m.t.t. þessa og birta alla ráslista í HorseDay appinu. Biðjum við fólk um að líta yfir ráslistana til að tryggja að allt sé eins og á að vera.
Öll skilaboð, afskráningar, forföll og upplýsingar biðjum við um að séu send á netfangið motanefnd@sorli.is og nota einungis þá boðleið. Aðrar leiðir eru ekki gildar og geta farið fram hjá sjálfboðaliðum sem starfa við mótið.
Hlökkum til að sjá ykkur á vellinum á morgun.
Gangi ykkur vel.
Mótanefnd