Fyrstu vetrarleikar vetrarins verða haldnir laugardaginn 30. janúar. Hefst það stundvíslega kl.12:00 að Sörlastöðum í Hafnarfirði.
Dagskrá og keppnisflokkar:
- Pollar
- Börn
- Unglingar
- Ungmenni
- Byrjendaflokkur
- Konur 2
- Karlar 2
- Heldri menn/konur 55 ára og eldri
- Konur 1
- Karlar 1
- Opinn flokkur
- 100 m Skeið
Pollar keppa inni í reiðhöllinni, aðstoðarmenna polla þurfa að vera með grímur.
Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Sörla. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.
Vetrarleikar Sörla er þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, auk þess sem keppendur safna stigum úr öllum þremur mótunum og verða stigahæstu knaparnir í hverjum flokki verðlaunaðir á síðasta mótinu.
1. sæti gefur 11 stig
2. sæti gefur 8 stig
3. sæti gefur 6 stig
4. sæti gefur 5 stig
5. sæti gefur 4 stig
1. stig fæst fyrir þá sem taka þátt
Um mótið
Á þessu móti er keppt í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms eftir útgefinni rásröð. Keppt er annars vegar í hægu tölti og hins vegar frjálsri ferð á tölti eftir fyrirmælum þular. Auk þessa er keppt í 100 m. skeiði. Riðnir eru tveir sprettir og gildir betri tíminn úr öðrum hvorum sprettinum. Sjá nánar reglur mótaraðarinnar hér:
Mótanefnd hvetur keppendur að nýta vetrarmótaröðina til að fara út fyrir þægindarammann og leggja metnað í hvaða flokk það skráir sig. Það hefur ekkert fordæmi fyrir því hvaða flokka fólk skráir sig í á stærri mótum. Hér má sjá hvernig flokkarnir eru skráðir í sportfeng og nánari lýsing á þeim.
Tölt T1- Opinn flokkur-Meistaraflokkur. Mikið keppnisvant fólk, bæði atvinnumenn og áhugamenn. Kynjablandaður flokkur. Fólk sem mjög virkt í keppni og hefur áralanga reynslu í keppni.
Tölt T1- Opinn flokkur - 1 flokkur. Keppnisvanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkurinn er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur verið að keppa sem áhugamenn og eru komnir með reynslu í einhverjum keppnisgreinum.
Tölt T1 - Opinn flokkur - 2 flokkur. Minna vanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkur er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur lítið keppt eða er að byrja aftur að keppa eftir langt hlé.
Tölt T1-Opinn flokkur Flokkur 55+ heldri menn og konur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem eru 55 á árinu eða eldri. Þeir sem kepptu í þessum flokk í fyrra (þá 50+) mega halda áfram að keppa í þessum flokk.
Tölt T1 – opinn flokkur-3 flokkur Byrjendaflokkur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem hafa aldrei keppt en langar að spreyta sig.
Pollaflokkur. Knapar 9 ára eða yngri á árinu. Keppnin verður inni í reiðhöll
Barnaflokkur = Knapar 10 - 13 ára á árinu
Unglingaflokkur = Knapar 14 - 17 ára á árinu
Ungmennaflokkur = Knapar frá 18 - 21 ára á árinu
- Pollaflokkur. Knapar 9 ára eða yngri á árinu. Keppnin verður inni í reiðhöll
- Barnaflokkur = Knapar 10 - 13 ára á árinu
- Unglingaflokkur = Knapar 14 - 17 ára á árinu
- Ungmennaflokkur = Knapar frá 18 - 21 ára á árinu