Yfirþjálfari Hestamannafélagsins Sörla

Áhugasamir sækið um 

Laust er til umsóknar starf yfirþjálfara hjá Hestamannafélaginu Sörla í Hafnarfirði. 

Sörli leitar að kraftmiklum leiðtoga til að taka að sér yfirþjálfara starf félagsins. Viðkomandi er ábyrgur fyrir útfærslu á fræðslu-, æfingum-afreks- og uppeldisstefnu félagsins í samstarfi við framkvæmdastjóra og stjórnir félagsins.

Um er ræða yfirumsjón með námskeiðahaldi, skipulögðum reiðmennskuæfingum og fjölbreyttri fræðslu hjá félaginu. Reglulegar reiðmennskuæfingar stunduðu síðasta vetur rúmlega 80 manns á öllum aldri en heildar fjöldi þátttakenda á námskeiðum og æfingum var í kringum 150 manns. Að auki samþykkti stjórn að innleiða Afreksstefnu, fyrir yngri flokka, eftir fyrirmynd ÍSÍ sem unnið er eftir í fræðslustarfi yngri flokka. Sörli hefur einnig undirritað viljayfirlýsingu um þátttöku fatlaðra þegar ný og glæsileg reiðhöll opnar.

Framundan eru gríðarlega spennandi tímar hjá félaginu og mikill áframhaldandi uppgangur þar sem að á árinu 2025 opnar fyrsti hluti einnar bestu innanhúsaðstöðu fyrir hestamennsku á landinu. Þjálfarar félagsins hafa undanfarið verið að mestu atvinnumenn í Sörla. Með auknum kröfum, umsvifum og fleiri möguleikum verður þörf fyrir fleiri þjálfara. Yfirþjálfarastaða í Sörla er tækifæri fyrir réttan aðila til að taka þátt í að halda áfram að þróa og móta framtíð íþróttarinnar innan Sörla. Framtíðar starfsumhverfið verður eitt það besta í þessari íþrótt á landinu í samvinnu við það góða og metnaðarfulla starfsfólk sem fyrir er. 

 Starfssvið: 

• Yfirumsjón með æfingum, fræðslu-, og afreksþjálfun félagsins, í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra 
• Yfirumsjón með þjálfun og þjálfurum í samráði við framkvæmdastjóra félagsins og stjórn
• Eftirlit með tekjum og kostnaði við fræðslu og námskeiðahald í samstarfi við framkvæmdastjóra 
• Skipulagning á æfingatöflum og námskeiðum félagsins 
• Taka þátt í að móta og skipuleggja afreksstarf félagsins 
• Skipulagningu og verkaskipting þjálfara 
• Skipuleggja foreldrafundi og starf foreldraráða, í samstarfi við framkvæmdarstjóra 
• Þjálfun samhliða yfirþjálfarahlutverkinu 
• Þátttaka í verkefnum innan félagsins varðandi mót og eftirfylgni með yngri flokkum á innanfélagsmótum og fyrir Landsmót 
• Önnur tilfallandi störf unnin í samráði við framkvæmdarstjóra félagsins 

 Menntunar og hæfniskröfur 

• Reiðkennaramenntun 
• Reynsla af þjálfun nauðsynleg 
• Góðir skipulags- og stjórnunarhæfileikar og mikil og jákvæð hæfni í mannlegum samskiptum 
• Sjálfstæði í starfi og hæfileiki til að vinna með öðrum 
• Drifkraftur og frumkvæði 
• Hæfileiki til að tjá sig í rituðu og töluðu máli 
• Brennandi áhugi á hestamennsku og vinnu með fólki á öllum aldri 
• Jákvæðni og vera tilbúin að takast á við nýjungar  

Laun yfirþjálfara eru verktakalaun en þó með fyrirfram ákveðinni tryggingu.

Áhugasamir vinsamlegast sendi inn á Alfred.is umsókn og ferilskrá fyrir 31. júlí 2024.