Fyrstu vetrarleikar vetrarins í Sjóva mótaröðinni verða haldnir laugardaginn 22. febrúar. Hefjast þeir stundvíslega kl 11:00 á Hraunhamarsvellinum.
Skráning er opin til kl. 18.00 þann 21. febrúar næstkomandi. Hér er linkur í skráningarformið
Útvarpað frá leikunum á rás 106,1
Skráningargjald er 3000 kr. í allar flokka nema í Pollaflokk en í þeim flokki er ekkert skráningagjald. Greiða þarf inn á reikning Sörla þátttökugjald áður en skráningu lýkur til að hafa rétt á að taka þátt og senda kvittun á netfangið motanefndsorla@gmail.com
Reikningsnúmer og kennitala Sörla: 0544-26-001803, 640269-6509
Nánari upplýsingar um dagskrá og ráslista verður birt síðar.
Keppnisflokkar:
100m Skeið
Pollaflokkur - skráning á motanefnd@sorli.is
Barnaflokkur minna vanir - Barnaflokkur
Barnaflokkur meira vanir - Barnaflokkur
Unglingaflokkur minna vanir - Unglingaflokkur
Unglingaflokkur meira vanir- Unglingaflokkur
Ungmennaflokkur minna vanir -Ungmennaflokkur
Ungmennaflokkur meira vanir - Ungmennaflokkur
Byrjendaflokkur fullorðinna
Karlar 2
Konur 2
Konur 1
Karlar 1
Heldri menn & konur (55+)
Opinn flokkur
Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í Hestamannafélaginu Sörla. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og sama flokk fyrir alla mótaröðina.
Á fyrstu tveimur mótunum má aðeins keppa með einn hest en á þriðja mótinu má skrá fleiri en einn hest. Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður flokka eða sameina flokka ef svo ber undir vegna meðal annars dræmrar þátttöku.
Séu 20 eða færri keppendur skráðir í flokk skipar dómari 5 efstu hesta í sæti. Séu keppendur 21 eða fleiri skráðir í flokk velur dómari 10 efstu hesta sem ríða úrslit. Að þeim loknum velur dómari 5 efstu hesta í sæti.
Vetrarleikar Sörla er þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, keppendur safna stigum.
Á mótaröðinni keppir knapi til stiga. Aðeins er hægt að safna stigum í einum flokki.
Stigasöfnunin er eftirfarandi:
Fyrsta sæti 10 stig
Annað sæti 8 stig
Þriðja sæti 6 stig
Fjórða sæti 5 stig
Fimmta sæti 4 stig
Sjötta til tíunda sæti 3 stig
Að mæta í braut 1 stig
Ekki er keppt til stiga í pollaflokk. Ahugið aðeins Sörlafélagar safna stigum á mótaröðinni.
Allar athugasemdir og kvartanir vegna einhvers sem varðar fyrirkomulag mótsins eða annað tengt mótinu skulu berast á netfangið motanefnd@sorli.is
Á mótaröðinni er keppt í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms eftir útgefinni rásröð. Keppt er annars vegar í hægu tölti og hins vegar frjálsri ferð á tölti eftir fyrirmælum þular. Pollar og börn ríða á hringvelli. Auk þessa er keppt í 100 m. skeiði. Riðnir eru tveir sprettir og gildir betri tíminn úr öðrum hvorum sprettinum. Sjá nánar reglur mótaraðarinnar hér.
Mótanefnd hvetur keppendur að nýta vetrarmótaröðina til að fara út fyrir þægindarammann og leggja metnað í hvaða flokk það skráir sig. Það hefur ekkert fordæmi fyrir því hvaða flokka fólk skráir sig í á stærri mótum. Hér má sjá hvernig flokkarnir eru skráðir í sportfeng og nánari lýsing á þeim.
Meistaraflokkur. Mikið keppnisvant fólk, bæði atvinnumenn og áhugamenn. Kynjablandaður flokkur. Fólk sem mjög virkt í keppni og hefur áralanga reynslu í keppni.
1 flokkur. Keppnisvanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkurinn er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur verið að keppa sem áhugamenn og eru komnir með reynslu í einhverjum keppnisgreinum.
2 flokkur. Minna vanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkur er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur lítið keppt eða er að byrja aftur að keppa eftir langt hlé.
Flokkur 55+ heldri menn og konur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem eru 55 á árinu eða eldri.
Byrjendaflokkur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem hafa aldrei keppt en langar að spreyta sig.
Pollaflokkur. Knapar 9 ára eða yngri á árinu.
Barnaflokkur og Barnaflokkur minna vanir = Knapar 10 - 13 ára á árinu
Unglingaflokkur og Unglingaflokkur minna vanir = Knapar 14 - 17 ára á árinu
Ungmennaflokkur = Knapar frá 18 - 21 ára á árinu