Gæðingaveisla 2022

Á Hraunhamarsvelli 

Verður haldin dagana 25. - 28. ágúst á Hraunhamarsvellinum.
Skráning er hafin á Sportfeng og stendur til 20. ágúst næstkomandi.

Keppt verður í A og B-flokki Opinn flokkur, A og B-flokki áhugamanna, B-flokk ungmenna, B-flokk unglingaflokki og barnaflokki.
Að auki verður keppt í 100m skeiði.

Við ætlum einnig að bjóða upp á Gæðingatölt. Dæmt er hægt tölt og fegurðartölt ásamt því að gefnar eru einkunnir fyrir vilja og fegurð í reið.
Boðið verður upp á
Opinn flokk
Áhugamannaflokk (2. flokkur)
Ungmennaflokk (21 og yngri)

Skráningargjald:

Börn, unglingar: 4.000 kr.
Ungmennaflokkur: 5.000 kr.
Opinn flokkur: 5.000 kr.
Áhugamannaflokkur: 5.000 kr.
Skeið: 5000 kr.

-ATH – Sé greitt með millifærslu þarf kvittun að berast á motanefnd@sorli.is til að skráning sé tekin gild.

Allar fyrirspurnir og afskráningar skulu berast á motanefnd@sorli.is

Sé skráð eftir að skráningafresti lýkur er tvöfalt skráningagjald en ekki verður bætt við eftir að ráslistar verða gefnir út.
Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki er næg þáttaka.

Mótanefnd
Sörla