Vetrarleikar II - Sjóvámótaröðin

Á Hraunhamarsvelli 

Vetrarleikar II  - Sjóvámótaröðin

Breytt dagsetning!
Vegna fjölmargra spennandi hestatengdra viðburða laugardaginn 22. mars höfum við ákveðið að færa Vetrarleika Sörla II til sunnudagsins 30. mars. Við vonum að þessi breyting henti sem flestum og hlökkum til að sjá ykkur á vellinum!

Skráning er þegar opin!
Skráning í mótið er þegar hafin og fer fram í gegnum eftirfarandi hlekk: Skráning á vetrarleika II. Athugið ef þið fáið ekki staðfestingu þegar þið ljúkið skráningu hefur skráning ekki farið í gegn. Ekki missa af tækifærinu til að taka þátt í þessu skemmtilega móti!
Skráningu lýkur 29. mars kl. 18.00.

Að gefnu tilefni:
Til að tryggja sanngjarna og skemmtilega keppni er mikilvægt að allir knapar skoði hæfni- og aldursviðmið hvers flokks vandlega þegar þeir nýskrá sig í þessa mótaröð og skrái sig í þann flokk sem lýsir best þeirra hæfni eða öðrum viðmiðum. Með því tryggjum við að keppnin verði bæði spennandi og hvetjandi fyrir alla þátttakendur og að óreyndari knapar fái tækifæri til að eflast og þroskast í keppni.

  • Opinn flokkur. Mikið keppnisvant fólk, bæði atvinnumenn og áhugamenn. Kynjablandaður flokkur. Fólk sem mjög virkt í keppni og hefur áralanga reynslu í keppni.

  • 1 flokkur. Keppnisvanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkurinn er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur verið að keppa sem áhugamenn og eru komnir með reynslu í einhverjum keppnisgreinum. 

  • 2 flokkur. Minna vanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkur er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur lítið keppt eða er að byrja aftur að keppa eftir langt hlé.

  • Flokkur 55+ heldra fólk. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem eru 55 á árinu eða eldri óháð keppnisreynslu.

  • Byrjendaflokkur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem hafa aldrei keppt en langar að spreyta sig.

  • Pollaflokkur. Knapar 9 ára eða yngri á árinu.  Skipt upp í teymdir og ríðandi eftir getu sem forráðamenn barnanna ábyrgjast.

  • Barnaflokkur meira vön og Barnaflokkur minna vanir = Knapar 10 - 13 ára á árinu.  Fer eftir keppnisreynslu og árafjölda í hestum í hvorn flokkinn börnin skrá sig

  • Unglingaflokkur meira vön og Unglingaflokkur minna vanir = Knapar 14 - 17 ára á árinu. Fer eftir keppnisreynslu og árafjölda í hestum í hvorn flokkinn unglingar skrá sig

  • Ungmennaflokkur meira vön og Ungmennaflokkur minna vanir = Knapar frá 18 - 21 ára á árinu.  Fer eftir keppnisreynslu  og árafjölda hvort flokkinn ungmennin skrá sig.