Vísindaferð Kvennadeildar Sörla
Laugardaginn, 12. nóvember 2022 kl. 12:30
Kæru Sörlakonur.
Þann 12. nóvember verður farin vísindaferð kvenna á helstu hestabúgarða í nágrenni Hafnarfjarðar. Farið verður frá Sörlastöðum um hádegi og fyrst heimsækjum við Grænhól þar sem Þórdís Erla Gunnarsdóttir tekur á móti okkur. Þaðan er farið til Olil Amble að Syðri-Gegnishólum. Að lokum heimsækjum við Siggu Pé að Sólvangi og kynnumst starfsemi hennar. Þessar hestakonur eru í fremstu röð hestamennskunnar, missið ekki af þessu einstaka tækifæri að kynnast þeim og sjá vinnuaðstöðu þeirra.
Mæting kl.12:00 en lagt verður af stað frá Sörlastöðum kl. 12:30 og er áætluð heimkoma ca. 19:00-19:30.
Kostnaður er 5.000 kr á mann, innifalið; rúta og léttar veitingar áður en lagt verður af stað.
Við biðjum ykkur að skrá ykkur í forms skjalið.
Greiðsla fer inn á reikning 0544-26-030963 kt. 640269-6509 til að staðfesta skráningu. Vinsamlega sendið staðfestingarpóst á netfangið: kvennadeild@sorli.is
Síðasti dagur skráningar er 1. nóvember.
Takmarkaður sætafjöldi.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Kær kveðja,
Kvennadeildin.